Góð innleiðing skiptir máli
Nóvember 2025

Innleiðing tímaskráningarkerfis – lykillinn að árangri.
Að taka upp nýtt tímaskráningarkerfi snýst ekki bara um að setja upp hugbúnað. Raunverulegur árangur næst fyrst þegar starfsfólk skilur tilganginn, ferlarnir eru rétt skilgreindir og kerfið aðlagað að starfseminni.
Hjá TimeEd höfum við síðustu misseri aðstoðað fjölda fyrirtækja við innleiðingu TimeEd tímaskráningarkerfi, þar sem markmiðið er alltaf það sama: að gera breytinguna einfaldari, skilvirkari og varanlega.
Hvað felst í góðri innleiðingu?
Góð innleiðing byggir á fleiri þáttum en tæknilegri uppsetningu:
- •Greining á núverandi vinnuferlum
- •Skýr skilgreining á verkefnum og verkþáttum
- •Aðlögun kerfisins að starfsemi fyrirtækisins
- •Kynning fyrir stjórnendur og starfsfólk
- •Markviss fræðsla og námskeið
Þegar þessi skref eru tekin í réttri röð minnkar mótstaða, notkun eykst og ávinningur kemur hraðar fram.
Kynningar og námskeið skipta sköpum.
Reynslan sýnir að fyrirtæki sem leggja áherslu á góða kynningu og þjálfun ná mun betri árangri. Starfsfólk upplifir kerfið sem hjálpartæki, ekki eftirlit, og stjórnendur fá betri yfirsýn frá fyrsta degi.
TimeEd býður upp á sérsniðnar kynningar og námskeið, bæði á staðnum og í fjarfundi, allt eftir þörfum hvers fyrirtækis.
Rétt innleiðing er lykillinn að því að tímaskráning skili raunverulegum árangri.