Notkunarskilmálar TimeEd
Síðast uppfært: apríl 2026
TimeEd ehf, kt. 480312-0150
1Hverjir eru þessir skilmálar?
Þessir skilmálar gilda um alla notkun á þjónustu TimeEd ehf. — vefsíður, app og tengdar lausnir (hér eftir „Þjónustan“). Með því að nota Þjónustuna samþykkir þú skilmálana, gagnavinnslusamning og persónuverndarstef nu TimeEd.
Skilmálar þessir gilda jafnt um einstaklinga og lögaðila.
2Persónuvernd og gögn
TimeEd starfar í fullu samræmi við íslög um persónuvernd nr. 90/2018 (GDPR). Við söfnum aðeins þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita þjónustuna.
Prufuútgáfa: Gögn eyðast 14 dögum eftir lok 14 daga prufutímans.
Greiðð útgáfa: Gögn eyðast 90 dögum eftir að aðgangi er lokað.
TimeEd deilir aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila án þíns samþykkis og notar nauðsynlegar öryggis ráðstafanir til að vernda gögn þín.
3Aðgangur og öryggi
Þú berð ábyrgð á leynimerkinu þínu og aðgangsgögnum. Aðgangur er persónubundinn og má ekki framselja öðrum.
- Breyttu lykilorðinu þínu eftir fyrstu innskráningu.
- Ef þú gleymir lykilorðinu sendir kerfið endursetningartengil á netfangið þitt.
- Ef grunur vaknar um óleyfilegan aðgang skaltu hafa samband við okkur strax.
TimeEd ber ekki ábyrgð á truflunum sem stafa af tæknilegum bilunum, uppfærslum eða utanaðkomandi atriðum.
4Greiðslur og reikningagerð
Reikningar eru sendir út 1. hvers mánaðar fyrir notkunina þann mánuð. Eindagi er 7 dögum eftir útgáfu reiknings.
Gildandi verðskrá er alltaf aðgengileg á timeed.is.
5Markaðssamskipti
Með því að samþykkja skilmálana gefur þú okkur leyfi til að senda þér fréttabréf, tilboð og uppfærslur um þjónustuna. Þú getur hvenær sem er afskráð þig með því að smella á „Afskráning“ í tölvupósti eða hafa samband við okkur.
6Hugverkaréttindi
Allt efni TimeEd — hönnun, texti, hugbúnaður og vörumerki — er eign TimeEd ehf. eða notað með leyfi. Þú mátt nota efnið eingöngu til eigin nota og mátt ekki afrita, dreifa eða endurbirta það án skriflegs leyfis.
7Bannað er að:
- Nota sjálfvirkan hugbúnað til að nálgast eða afrita gögn úr kerfinu.
- Reyna að skoða eða afrita undirliggjandi forritskóða.
- Senda skaðlegar skrár eða vírus inn í kerfið.
Ef þú verður óvart var undirliggjandi kóði aðgengilegur, t.d. vegna bilunar, skaltu tilkynna það á hjalp@timeed.is.
8Lokun aðgangs
TimeEd áskilur sér rétt til að loka aðgangi án fyrirvara ef:
- notandi brýtur gegn skilmálum,
- grunur vaknar um lögbrot,
- reikningar eru ógreiddir (sbr. gr. 4).
Tilkynning er send á skráð netfang þegar við á.
9Breytingar á skilmálum
TimeEd getur breytt skilmálum hvenær sem er. Ef breytingar eru notendum óhagstæðar fær þú minnst 7 daga fyrirvara áður en þær taka gildi.
10Lög og lögsaga
Íslensk lög gilda um þessa samninga. Ágreiningur er leystur fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
TimeEd ehf. · kt. 480312-0150 · Reykjavíkurvegur 66, 220 Hafnarfjörður