Til baka í fréttir

Ný PDF-vinnuskýrsla til að senda með reikningi

Maí 2026

Ný PDF-vinnuskýrsla til að senda með reikningi – TimeEd

Við höfum endurhannað PDF-útgáfu vinnuskýrslunnar í TimeEd frá grunni. Nýja útlitið er skýrara, faglegra og auðlesnara.

Skýrslan er hönnuð til að senda viðskiptavininum með reikningnum og sýnir vinnuna að baki: tímana á hverjum degi, hvaða verkefni var unnið í hvert sinn, og samantekt í lokin. Við hverja útstimplun kemur einnig fram starfsmaðurinn (upphafsstafir) og hans skýring á því sem var gert. Þannig fær viðskiptavinurinn skýra og gegnsæja mynd af vinnunni — án þess að spyrjast fyrir.

Það sem skýrslan sýnir:

  • Tíma á hverjum degi — skráðar klukkustundir flokkaðar eftir dögum.
  • Verkefni og verkþætti — hvað var unnið í hvert sinn.
  • Starfsmann og skýringu — upphafsstafir starfsmanns og hans skýring við hverja útstimplun á því sem gert var.
  • Samantekt — heildaryfirlit yfir tímabilið með skýrri sundurliðun.

Skýrslan styður íslenska stafsetningu og er tilbúin til útprentunar eða útsendingar.