Teymi í TimeEd
September 2025

Í TimeEd hefur nú verið bætt við nýrri og öflugri teymisvirkni sem einfaldar verkefnastjórnun verulega. Í stað þess að úthluta verkefnum á einstaka starfsmenn er nú hægt að úthluta þeim beint á teymi.
Hvert teymi inniheldur skilgreindan hóp starfsmanna og þegar verkefni er sett á teymi dreifist það sjálfkrafa á réttan hóp. Þetta hentar sérstaklega vel í verkefnum þar sem mannafli breytist, vaktaskipulag er sveigjanlegt eða margir koma að sama verki.
Með teymum í TimeEd verður yfirsýn betri, minni handavinna við breytingar og verkefnastjórnun skilvirkari – bæði fyrir stjórnendur og starfsfólk.